--> Jackie

JACKIE

 

 

 

 

 

31.3.04

�slensk beygingar- og orðmyndunarfræði....

Ég var að gera verkefni sem er um hvort eintala eða fleirtala sé auðveldari, þ.e. ef miðað er við beygingarendingarnar. Ég skrifaði heil 369 orð um þetta. Ég hefði getað skrifað meira en verkefnið átti að vera max 300 orð. Ég ætla ekki að drepa ykkur með því að ræða þetta verkefni.

Ég var að lesa að 19.apríl verðu sendur út síðast þátturinn af Nýjustu tækni og vísindi. Hugsa sér! Þessi þáttur er búin að vera eitthvað um 30 ár í sjónvarpinu. Mér fannst alltaf mjög gaman að horfa á þessa þætti en ég sá þá ekki oft þar sem ég var yfirleitt á sundæfingu þegar þeir voru á dagskrá. En allir að horfa á síðasta þáttinn 19.ap!

Well, er farin að læra þangað til Grannar byrja.
Laters

|

30.3.04

Afu Ra

Svo gæti farið að Afu Ra spili á Gauknum 21.apríl. Það vill svo skemmtilega til að þetta er djammdagur því sumardagurinn fyrsti er daginn eftir. Shit! Annars er ég búin að fá frí í vinnunni til að fara á Hróaskeldu. Hún elsku Halldóra ætlar að redda þessu fyrir mig. Annars er ég mjög óákveðin hvort ég ætla að fara en mig langar mjög mikið.

Ég varð algjörlega stopp í MTV þýðingunni minni í gær. Það eru tveir höfundar af þessari grein og greinilegt að í þessum kafla skrifar hinn höfundurinn. Ég var algjörlega lost í orðaflækju og skildi ekkert í þessum texta. Það er örugglega auðveldara að skilja gömul skosk ljóð eftir Robert Burns en þennan texta. Jáhá! hver er Robert Burns? It´s for me to know and for you to find out! hehe

Æi, ég hef ekkert mikið að segja þannig að ég segi bara peaze!

|

29.3.04

Ég er svikari!

Já í dag gerði ég svoldið sem ég á ekki að gera. Ég fór yfir Suðurgötuna. Það er eitthvað sem heimspekideildarnemi á alls ekki að gera. Ég meira að segja gerðist það djörf að fara á kaffistofuna í Tæknigarði. Það er engin hætta á að ég geri það aftur því kaffistofan í Tæknigarði er dýr búlla. Sérstaklega þar sem ég er mjög brók núna. Svo er ég og konan á kaffistofunni í �rnagarði orðnar svo góðar vinkonur. Hún veit hvað ég kaupi. Hún veit líka að ég vil ekki debetkortaafritið. Þessi kona er góð og ég ætla ekki að svíkja hana né heimspekideildina aftur.

Biggi aka BÖB er kominn með blogg. Skemmtilegt. Sérstaklega þar sem ég vann fyrstu getraunina Hvert er árið? Ég ætla að rústa þessari keppni! Biggi er búin að lofa verðlaunum og hann skal sko fá að standa við það. Ég var að bæta við tenglum á blogg strákanna.

Jæja, ég er farin að rumpa þessu orðræðugreiningarverkefni af! Ohh hvað það verður ekki gaman að gera lokaverkefnið í orðræðugreiningu í Danmörku. Ég ætla að vera búin með það áður en ég kem til stelpnanna því að ég veit að ég á ekkert eftir að læra þar!
Peaze

|

28.3.04

Uppáhalds staðurinn minn.....Kaffibarinn!

Ég var örugglega ekki sú eina sem grenjaði úr hlátri þegar Hilmir Snær (ef ég man rétt) lék artífartí týpu sem stundaði Kaffibarinn í Fóstbræðrum. Verst er að ég á alla þættina á videospólum en núna er bara til DVD spilari á mínu heimili.

Laugardagsdjammið var fínt. Fór á Reunionið. Það var mjög fínt. Mætingin var ekkert alltof góð en það var fámennt en góðmennt. Ótrúlega gaman að heyra hvað allir eru að gera núna og hvað þeir hafa verið að gera. � leiðinni niðrí bæ sóttum við Evu. Ég dró hana með mér á Sólon þar sem krakkarnir fóru. Við vorum fljótar að koma okkur út. Kíktum aðeins á Prikið. Það er svo misjöfn stemmningin þarna. Partýið byrjar yfirleitt ekki fyrr en klukkan þrjú ef það byrjar á annað borð. Við fórum því á Kaffibarinn og hittum Sunnu. Það var massa fílingur á Kaffibarnum. Ég og Eva fórum svo heim um hálf fimm. Gaman!

Ég fór í fermingarveislu í dag. Það var ekkert smá gott veisluborðið. Brauð og álegg, grænmetispæ, brauðtertur og nokkrar kökur. Svo var auðvitað fermingarterta með tilheyrandi marsipani og rjóma. Þar sem ég borða ekki rjóma þá smakkaði ég hana ekki en borðaði þeim mun meira af grænmetispæi.

Skólinn er að verða búinn! Það er bara næsta vika og svo mánudagur og þriðjudagur. Svo er ég farin út, jibbí! Þessi önn er búin að líða svo hratt að ég get endalaust tönglast á því. � þessari viku ætla ég að klára dagbókina, á 26 færslur eftir. Ég ætla alla vegana að skila henni áður en ég fer út. Nenni ekki að vera með hana á bakinu í paskefríinu. Svo ætla ég að klára MTV þýðinguna mína. Nenni heldur ekki að taka hana með mér út. � fimmtudaginn er lokaverkefnið í Meðferð talaðs máls. Þarf að finna eitthvað til að segja frá og skrifa erindi/ræðu. Hugmyndir vel þegnar.

Þessi vika verður massa vika!

|

27.3.04

H� 2004-2005

Þá er það frágengið. Ég er búin að velja námskeið fyrir næsta ár.
Haust 2004:
Inngangur að fjölmiðlum: Vald og formgerð
Ritlist: Að skrifa kvikmynd I
�hrif kláms og ofbeldis í myndmiðlum
Klám og vændi
Vor 2005:
�slensk setninga- og merkingarfræði
�slendingasögur
Málstofa í nútímabókmenntum: Sjón og Guðrún Eva Mínervudóttir
Afbrotafræði

Ég var að fatta um daginn hvað það er ógeðslega skemmtilegt að vera í skóla. Núna skil ég það sem Þórunn systir var að segja við mig þegar ég var yngri, að njóta þess að vera í skóla. Ég er að njóta þess í botn núna!

� gær var síðasta vísindaferð vetrarins. Við fórum í Egils. Það var ágætt. Eftir smá partý fórum við niður í bæ. Við byrjuðum á skítapleisinu Jóni forseta lame ass staður. Gaurinn sem örugglega á staðinn er einræðisherra dauðans. Starfsmenn þora ekki að svara saklausustu spurningum. Til dæmis spurði einhver starfsmann þarna hvort ekki væri í lagi að færa saman borð því við vorum svo mörg, hey starfsmaðurinn fór til einræðisherrans til að fá samþykki hans. Svo á að vera tilboð fyrir Háskólastúdenta en það er alltaf verið að svindla á okkur. OK nóg um þessa skíta búllu! Við fórum þá á Nelly´s en þar fá Mímisfélagar ölið á 330 kall. Við sátum þar í góðan tíma. Einhverjir útlenskir gaurar voru í spilakössunum og voru alltaf að vinna. Ég og Tóta ákváðum að freista gæfunnar og settum 50 kall í og vita menn við unnum 1000 kall. Fyrir þá aura fórum við á barinn. Eftir að ég, Tóta og Lára höfðum stigið ,,trilltan" dans á dansgófinu með stelpunni í hvítubuxunum og hinum með bumbuna út í loftið var ákveðið að fara eitthvað annað. Langt síðan ég hef farið á svona hörku pöbbarölt. Kíkti á Prikið, Vegamót, Kaffibarinn (massastemmning þar og troðið), Dillon og Sirkus. Það var hörku partý í gangi á Sirkus. Ég, Saga og Björk enduðum svo á Kaffibarnum. Ég fór svo snemma heim.

� kvöld er Ægis reunion. Það verður fjör að hitta krakkana, sumir búnir að eignast börn og maka og allt bara!

|

26.3.04

orðlaus

Ég er alveg orðlaus. � gær var karlakvöld X-sins. Allt í góðu með að þeir hittist en það sem er algjör óþarfi er þessi blessaða blautbolkeppni og einhvejir stripparar. Ég kíkti aðeins á myndir frá þessu kvöldi og ég get bara ekki annað sagt en að þessar stelpur sem tóku þátt í keppninni eru að gera mjög lítið úr sér. Standandi þarna ofaní fiskikari fullu af vatni og hella yfir sig, sumar varla í bol! Ein meira að segja reif sig úr bolnum. Ég skil heldur ekki hvað er svona gaman að horfa á þetta? Ég skil heldur ekki stelpur sem vinna í því að láta niðurlægja sig eins og í þessari keppni. Ég las á blogginu hennar Evu að Feministafélagið
� dag þarf ég að skila valinu mínu. Ég er ekki ennþá alveg ákveðin en stefni á að taka: Inngang að fjölmiðlafræði: Vald og formgerð, Að skrifa kvikmynd I, �hrif kláms og ofbeldis í myndmiðlun og Klám og vændi á haustönn. Ég er að líka að hugsa um Almenna félagsfræði en þá verð ég að sleppa einhverju öðru námskeiði. � vorönn verð ég að taka �slensk setninga- og merkingarfræði. Ég er að hugsa um að velja Afbrotafræði, �slendingasögur og annaðhvort málstofu í nútímabókmenntum: Sjón og Guðrún Eva eða �slenska bókmenntasögu.
Hvernig lýst ykkur á?

|

25.3.04

fyrsta annað og....

Ég hef ákveðið að halda áfram í skólanum út næsta vor. Ég er að vinna í því á fullu að ákveða hvaða námskeið ég eigi að taka. Það er úr svo miklu að velja en ekki allt sem heillar mig, sem betur fer. Skólaákvörðun mína negldi ég niður í gær þegar ég rifjaði upp þá daga þegar ég var að vinna á leikskólanum (sem var fínt) en allir hinir voru í skóla. Ég hafði ekkert að gera á kvöldin og þegar maður reyndi að fá eitthvað af þessu námsliði út þá var það upptekið við að læra, próf, verkefni o.s.fv. Ég nenni því hreinlega ekki að vera aftur í því spori. Svo fær maður líka bara vinnu í Ríkinu or sum.

Ég get endalaust talað um hvað tíminn líður hratt. Það er enn og aftur kominn fimmtudagur. Helgin er fullbókuð og er mjög ólíklegt að þið fáið tíma hjá mér. � föstudaginn er síðasta vísindaferðin. Ég ákvað að fara því þetta er síðasta þangað til í haust. Það verður farið í Egils en ég ætla að vera í rólegri kantinu. � laugardaginn sletti ég úr kaufunum (samt takmarkað er að fara í fermingarveislu á sun). Krakkarnir sem voru að æfa saman þegar við vorum ca. 12 ára ætlum að hittast á lau. Hátíðin verður haldin á ofurbúllunni Big Ben í Breiðholtinu. En Breiðholtið var eimmit pleizið þar sem æfingarnar voru. Það verður gaman að hitta krakkana. Híhí!

Farin að þýða MTV textann minn. Ætla að skila honum í næstu viku, helst þriðjudag. En við sjáum til með það.

|

24.3.04

whut to do?

Ég veit ekki hvað ég á að gera í sambandi við þenna skóla. Ég get klárað um jólin og útskrifast í febrúar eða tekið vormisserið og útskrifast í júní. Ég hef prófað að vinna meðan allir hinir voru í skóla og trúið mér það var ekki gaman. Svo fær maður líka yfirleitt ekkert skemmtilega vinnu þegar maður er svona ómenntaður. � dag er ég á þeirri skoðun að halda áfram í skóla, sjáum til hvað gerist á morgun. Ég verð að ákveða mig fyrir föstudaginn, þá er síðast séns að skila inn þeim námskeiðum sem maður ætlar í.

Ég er farin í tíma! Laters

|

23.3.04

GETUR FÓLK EKKI DRULLAST TIL A� SLÖKKVA � S�MANUM ÞEGAR ÞA� ER � BÓKHLÖ�UNNI?!!!!

Ég er reyndar ekki byrjuð að læra, maður verður að fyrst að fara nethringinn, skoða blogg og skoða póstinn og svolleiðis. Ef ég væri byrjuð að læra væri ég búin að ganga frá fimm manns. Símar eru búnir að hringja hér eins og ég veit ekki hvað. Yfirleitt eru þetta heimskar stelpur sem ,,gleyma" að setja símann á sælent.
En nóg um það!

Ef þarf að fara að velja hvaða námskeið ég ætla að taka á næsta misseri, en það er jafnframt mitt síðasta í þessu námi. �slenskudeildin var að breyta og færa til námskeið þannig að skyldunámskeið sem ég þarf að taka er ekki kennt fyrr en í vor og fæ ég því eitthvað annað námskeið til að taka sem skyldu. Ég ætla rétt að vona að það verði skemmtilegt námskeið. Annars er ég að pæla í að taka Inngang að fjölmiðlafræði: Vald og formgerð, áhrif kláms og ofbeldis í myndmiðlum og Ritlist: Að skrifa kvikmynd I. Þá er ég komin með 13 einingar og vona að þetta söpræs skyldufag verði ekki meira en 3 einingar. Ég þarf reyndar bara að taka 12,5 einingar og þá er ég búin. Ég er nefninlega að taka svo mikið núna. En er að spá í að taka bara fullt nám. Það er svo gaman:-)

Ohh ég hlakka (sími var að hringja, arrrrgggg) svo til að fara til DK. Vera bara chillin´ ude paa landet og fara svo í menninguna til Köben. Ég var að fatta að ég hef svo alveg heilar tvær vikur til að læra fyrir þetta eina próf sem ég fer í (má hafa bækur og allar glósur með). Ég hef þá nógan tíma til að vinna lokaverkefnið í Textagerð. Gaman Gaman

Jæja, ætla að drullast að læra. Er að gera verkefni í samtalsgreiningu. Það er frekar spennó.
PeAsE

|

22.3.04

Hress í stuði!

Þá er enn einn mánudagurinn kominn. Tíminn flýgur frá mér, ég verð að nýta þann sem eftir er mjög vel. Verkefnin sem ég þarf að klára áður en ég fer út eru: Þýðingin, ég á um 5 bls. eftir, dagbók sem á að vera 60 færslur, ég er búin með 21 og svo nokkur smærri verkefni.

Helgin var barasta fín. Var í góðu chilli hér heima á föstudagkvöldið og notaði laugardaginn til að læra. Um kvöldið fór ég út að borða með Sibbu á Vegamót. Mjög góður matur þar. Við kíktum aðeins á Arann eftir það. Fórum svo aftur á Vegamót þar sem við hittum Sunnu. Við ákváðum að kíkja aðeins á Hverfisbarinn en þar var enginn sem við þekktum. Við komum þá við á Prikinu og þar voru fáir. Hittum Adda og Davíð sem er að vinna á RUV á leiðinni út. Sibba ákvað þá að fara heim og ég fór á Vegamót að hitta Sunnu. Við fórum svo á Prikið, já það var sko flakk á minni, og þar var massa stuð! Eftir mjög góða danssveiflu þar fórum við á Kaffibarinn. Þar hittum við gengið: Villa, Sigga P, Gunna, �rmann, Kristínu Tómas. Gulli úr íslenskunni var líka hress á kaffibarnum. Massa stuð alveg. Ég svaf svo allan sunnudaginn og fór að vinna klukkan 19.

Skemmtó!

Jæja, er að fara að þjálfa litlu gríslingana mína.
Laters

|

19.3.04

ryksugan á fullu.....

Ég var að taka til í Höllinni. Get ekki sagt að það hafi verið skítugt en það var alveg tími til kominn að þurrka af og ryksuga. Ohh það er svo gott að vera í hreinu herberginu. Ætla að skipta um á rúminu á eftir og þá er Höllin fullkomin.

Fór á einu bestu hiphop tónleika sem hafa verið á landinu í gær. Reakwon the chef var á Gauknum. Þvílík stemmning það var geggjað. Gaurinn er tíbískur rappari, lítill, svartur, mjög massaður og með húfu! maaaad! Fór með Evu, Eirik og vinum hans. Ég og Eva fengum líka þennan góða stað til að standa á, fundum okkur tvo stóla og stóðum á þeim. Sáum vel á sviðið og allt.

Það voru ekki bara maad tónleikar í gær heldur tapaði MR í Gettu betur, hehe.

Það er ekkert smá ljúft að vera heima á föstudagkvöldi og slappa af. Ég man ekki eftir því að hafa verið heima á helgarkvöldi nema á sunnudagskvöldi og þá sennilega þunn. Svo er bara að vakna í fyrramálið hress og massa skólabækurnar. Þarf að skila 60 dagbókar/textafærslum 2.apríl. Ég á 45 færslur eftir sem þýðir að ég þarf að skrifa 3 færslur á dag með skiladeginum. Það er svosum alveg nóg að skrifa um það er ekki það.

Jæja, er farin að skrifa færslur dagsins.
Tjútt á morgun. Jibbí!
Góða nótt!

|

15.3.04

Er Hróaskelda 2004 ekki bara málið?

Ég held að ég sé bara komin að þeirri niðurstöðu að ég sé á leiðinni á Hróaskeldu. Stelpur í DK ég treysti því að þið farið, hehe! Hróaskelda í ár er massa hiphop en það eru Blackalicious (US) en ég eimmitt missti af þeim þegar þeir komu á airwaves því ég var í Edinborg, N*E*R*D (US), Dizzee Rascal (UK), Jokeren (DK), Sage Francis (US), Danger Mouse (US), Prince Po(etry) (US), Boom Bip (US), LifeSavas (US), Lyrics Born (US). Svo má ekki gleyma Basement Jaxx, Pixies, Bowie o.fl. Tjékk it íslenska hróaskeldusíðan og danska hróaskeldusíðan.
Verð að fara að læra, kem með Vestmannaeyjaferðasöguna, sem er nú reyndar ekkert mjög merkileg, seinna.
Pease!

|

11.3.04

fangar?????

Ég rakst á þetta bréf á málefni.com undirritað af Atla Helgasyni. Þetta bréf var skrifað í kjölfarið á einhverju máli um fríðindi fangavarða.
"Fríðindi fanga og fangavarða á Litla-Hrauni
� Dagskránni nú nýverið var fjallað um fríðindi fanga og fangavarða á Litla-Hrauni. Þar voru talin upp fríðindi sem fangar njóta á sama tíma og fríðindi fangavarða hafa verið afnumin. Rætt var við Ara Thorarensen, formann fangavarðafélagsins. �n þess að móðga nokkurn langar mig til að benda á að það sem greinin
stutta sagði í raun var að fangar á Litla-Hrauni fengju hluta af þeim sjálfsögðu nauðsynjum sem tilheyra lífi allra manna en fangaverðir hefðu glatað sundkortum sínum. Ég átta mig ekki alveg á því hvernig það geta talist fríðindi að fangar fái að hringja stutt símtöl, horfa á sjónvarp, pikka á tölvu, stunda lágmarks líkamsrækt eða sækja skóla. Þetta þykir einfaldlega sjálfsagt og nauðsynlegt hvar sem er. � greininni er minnst á góða líkamsræktaraðstöðu fanga á Litla-Hrauni í sama mund og haldið er fram að fangaverðir hafi engin tækifæri til hreyfingar. Það er einfaldlega ekki rétt. Ósagt er látið að fangaverðir hafa eigin líkamsræktaraðstöðu í
fangelsinu og afnot af sama íþróttahúsi og fangar, allt þeim að kostnaðarlausu. Verðirnir hafa þó miklu rýmri tíma sem þeir samt nýta lítið sem ekkert. Fangaverðir verja ekki lífinu í fangelsinu. Sumir vinna hefðbundinn átta stunda vinnudag, fimm daga vikunnar, rétt eins og venjulegt fólk. Aðrir vinna á vöktum þar sem skiptast á þrír vinnudaga og þrír frídagar. Fangar eyða öllum sólarhringnum í fangelsinu, alla daga vikunnar. Þeir fá eina og hálfa klst. til útivistar á hverjum degi sem ætluð er til hreyfingar, sjoppuferða, þvagprófana og ýmissa annarra erinda. Þeir fangar sem ekki fá vinnu eru læstir inni nær allan sólarhringinn, utan útivista, rúmlega tíu klst. einir inni á klefa og tæplega tólf klst. inni á gangi. Það gera rúmlega 90% fangavistarinnar. Eitt símtæki er fyrir hverja ellefu fanga sem skipta á milli sín sjö og hálfrar klst. símatíma á hverjum virkum degi sem þeir greiða fyrir sjálfir. Almennt er fólkið þeirra heima á kvöldin. � inniverunni fá fangar að horfa á sjónvarpið en stöðvarnar eru ekki 12 heldur 9. Þar af greiða fangar sjálfir fyrir eina vídeórás og erlendar rásir eru til staðar vegna útlenskra fanga. Hin svokölluðu fríðindi fanga eru engin fríðindi. � eðli sínu felur fangavist í sér frelsisskerðingu, ekkert meira en það. Tilgangur hennar er hvorki að svipta menn vonum, virðingu, heilbrigði eða lágmarks lífsviðurværi. Það sem er almennt og eðlilegt teljast ekkert endilega fríðindi í fangelsi. Ég er þó viss um að flestir fangar á Litla-Hrauni gæfu glaðir eftir tól sín og tæki ásamt öðru til að fá tækifæri til að verja tíma með fjölskyldum sínum, börnum, eiginkonum, mæðrum, systkinum og vinum við eðlilegar aðstæður. Þeir gæfu mikið fyrir tækifæri til betrunar í stað þess að verja fangavistinni í fullkomnu tilgangsleysi. Fangaverðir heyja kjarabaráttu rétt eins og margir aðrir. Sú barátta hefur hins vegar ekkert með hin svokölluðu fríðindi fanga að gera. Kjör fanga og fangavarða verða aldrei borin saman og kjarabarátta fangavarða skilar sér ekki með því að benda á aðbúnað fanga. Slíkt er fjarstæða.
Atli Helgason,lögfræðingur."

� nútíma þjóðfélagi er ekki lengur talað um fangelsi sem refsingarstofnun heldur afplánunarstöð. Ég fór að hugsa: Atli Helgason talar um sjonvarpsstöðvar og fleira sem fangar hafa aðgang að. Er það bara ekki nóg fyrir fanga? Fangar eru í fangelsi til að taka út refsingu ekki til að gista á lúxushóteli! Almenningur veit að ef einhver brýtur af sér fer hann í fangelsi og fær ekki að valsa inn og út og chilla með hverjum sem er!

|

10.3.04

kl.12:47

sælt veri fólkið!
SHIT hvað ég er orðin eitthvað þreytt á að læra. Er að gera allt á síðustu stundu. Ég held að það sé þetta rok sem feykir öllum kröftum úr manni. Eða hvað haldið þið?
Ég er svo mikið að spá. Ég klára hagnýtu íslenskuna næstu jól, á ég að halda áfram í skóla og taka eitthver rugl námskeið eða á ég að finna mér einhverja skemmtó vinnu og safna mér pening? Eins og staðan er í dag þá er ég að pæla í að vinna en ég er búin að skipa 100 sinnum um skoðun um þetta mál. Ef ég er að fara í skóla til Bretlands eða Bandaríkjanna þá kostar það náttúrulega pening þannig að það er spurning um að safna þeim. Annars var ekki gaman að vinna, síðast þegar ég gerði það, og allir aðrir í skóla. Maður hefur lítið að gera á kvöldin og getur t.d. alltaf farið á kaffihús eða í bíó, en þeir sem eru í skóla eru buzy að gera verkefni, fara í próf o.s.fv.
En nóg um þetta mál!
Nú eru 8 dagar þangað til Reakwon the chef verður með tónleika á Gauknum. Þetta verða maaad tónleikar. Þeir sem vilja koma með koma með, látið mig bara vita! Fyrir þá sem ekki vita þá er kauði í Wu Tang Clan og fyrir þá sem ekki vita hvað það er fylgjast ekki með!
Well ég hef ekkert meira að skrifa um. Er að fara í Textagerð eftir korter. Það verður chill eins og venjulega.
Laters

|

9.3.04

� fréttum er þetta helst.....

- mikið rok er á Höfðuborgarsvæðinu. Nokkrir nemendur Háskóla �slands fuku út í sjó í morgun. Nemendur krefjast yfirbyggingar yfir háskólasvæðið eða undirgöng milli bygginga.
- Nemendur H� eru mjög reiðir vegna lélegrar aðstöðu í Aðalbyggingu skólans. Aðaldyr byggingarinnar eru alltaf lokaðar vegna veðurs.
- ,,Aðeins 4 vikur eru eftir af skólanum og ég fer bara í eitt próf sem er 30.apríl" segir María Björk Guðmundsdóttir nemi og bætir við ,,þetta er alveg frábært að vera búin svona snemma í skólanum."
- María Björk Guðmundsdóttir afbragðsnemandi telur sig búna með orðræðufræðiverkefnið sem hún á að skila í dag. Hún telur engu að síður að verkefnið sé algjört bull og vonar að kennarinn hennar,hann Jóhannes Gísli, hafi húmor fyrir því.
- Fyrirmyndaríbúi í Kópavogi hringdi í Strætó í dag og hrósaði bílstjóra leiðar 114 kl. 7:24 í morgun. Ekki þurfti íbúinn að bíða nema 20 sek. eftir strætó sem er met auk þess sem veðrið var mjög slæmt. ,,Krafaverkin gerast enn" sagði forstjóri Strætó í samtali við fréttastofu í morgun. En þetta mun vera í fyrsta skiptið í 5 ár sem Strætó er hrósað.
- Geðbilaður maður sást HJÓLA í morgun um klukkan 7:30. Var hann vel búinn að sögn geðlæknis sem pikkaði hann upp í Mjóddinni og sendi hann beint í meðferð. ,,Þetta er alveg ótrúlegt að fólki skuli detta svona lagað í hug, að hjóla í 100 m/s og grenjandi rigningu" sagði geðlæknirinn í samtali við fréttastofuna fyrir stundu.

Ekki er fleira í fréttum. María Björk Guðmundsdóttir hyggst skila bullverkefninu og halda svo áfram að læra.

|

8.3.04

ÉG ER BRJ�LU�!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

ÉG ER BÚIN A� HANGA HÉRNA UPP � HLÖ�U FR� ÞV� KLUKKAN N�U � MORGUN OG HANGA YFIR OR�RÆ�UFRÆ�I VERKEFNINU. SVO ER ÉG A� F� TÖLVUPÓST NÚNA UM A� EINI T�MINN SEM ÉG � A� FARA � � DAG KLUKKAN EITT FELLUR NI�UR.
AARRRRGGGGGG! ÉG ER FARIN HEIM!

|

zzzzzzzz

úff hvað ég er þreytt! Er á Hlöðunni að reyna að læra. Ég var alveg að sofna þannig að ég lagði mig aðeins. Núna er ég með nálardofa í báðum fótunum og hálsinn er stífur. En það var gott aðeins að loka augunum.
Helgin var mjög fín. Eftir rólegt föstudagskvöld vaknaði ég kl. 9 og fór á fund með sundkrakkana mína hjá Regnbogabörnum. Það var fínt. Eftir fundinn var byrjað að huga að því að taka sig til fyrir kvöldið. Saga var með stelpufyrirpartý fyrir fyrirpartýið og var því byrjað að sötra klukkan 16. Rúmlega 17 fórum við 1.árs stelpurnar sem vorum hjá Sögu í 1.árs patý hjá Jóni Gesti. Þegar klukkan var að ganga átta fór ég niðrá Grand Hótel og RUVárshátíðina. Skemmtinefndin tók á móti manni og fengu allir danskort og seiftíkitt(varalit fyrir konurnar, krem o.fl.). Fólk fór beint á barinn í fordrykk sem var freyðivín sem mér fannst ekki gott. Ég og Baldvin, samt aðallega Baldvin, náðum sætum fyrir Geir&frú og Dolla&frú. � forrétt var ítölsk sjávarréttasúpa, aðallrétt lamba- og nautakjöt með tilheyrandi. Nautið var æði en lambakjötið (allavegana bitinn sem ég fékk) var feitt, ég þoli ekki feitt kjöt. � eftirrétt sem var snæddur um miðnætti var súkkulaði brownies, mjög góð en alveg nóg að fá þennan litla bita. Mér fannst ótrúlegt hvað þjónarnir á Grand Hótel voru ungir, þeir voru miklu yngri en ÉG og veitti greinilega ekkert af aðeins meiri þjálfun. Svo var tempóið á matnum svoldið hægt, t.d. að borða desertinn á miðnætti og kaffibollarnir komu þegar margir voru búnir með desertinn. Það hefði verið betra að fá te með kökunni en bjór. Það voru svo einhver skemmtiatriði misgóð en þeir sem voru með atriði fá hrós skilið. Fyndasta atriðið var í lokinn, klippt saman mistök úr fréttum og fleira og misheppnaðar upptökur t.d úr stundinni okkar og Baldvin að prófa hljóðið fyrir þýska boltann. Rúsínan í pysluendanum á þessu innslagi var Björn Bjarnason að klóra sér í eyranum með einhverju og það var sko alveg inní heila. Tökumaðurinn var semsagt búin að setja vélina í gang og Björn vissi það ekki, hahahahhaha.
Eftir þetta prógram spiluðu Geirfuglarnir. Ég dansaði samt ekkert fyrr en undir lokin, var svo mikið að tala. Þegar ballið var búið hélt ég niðrí bæ og ætlaði að hitta Sögu en þá var hún farin heim. Með mér í för í bæinn var Maggi á tölvudeildinni. Frekar fyndið þar sem ég þekki hann ekki neitt. Við byrjuðum á Prikinu. Þar var fínt. Svo var haldið á Kaffibarinn. Þar var gaman. Þar rakst ég líka á Kristínu Tómas, Bigga, �rmann, Stellu, Sigga P og Gunna. Svo hvarf Maggi af tölvudeildinni þannig að ég hélt bara áfram að rugla í þeim. Um klukkan hálf sex fórum við heim og var ég það heppin að Siggi P var að fara að skutla Bigga upp í Garðabæ og fékk ég því far heim. En ég kom heim um klukkan 6 eftir 14 tíma tjútt. Og það var sko sofið daginn eftir. Fór á fætur um klukkan 6 til að borða kvöldmat og mæta í Helgarsportið. Það góða var að ég var ekkert þunn, var búin að sofa allt úr mér.
Niðurstaðan er því að þetta var bara laugardagskvöld eins og það gerist best.
Jæja, nú er ég farin að læra........jibbí orðræðufræði.
pease

|

7.3.04

party in da club

var að koma heim eftir 14 tíma djamm, geggjað stuð!
góða nótt
kem með skýrsluna á morgun eða hinn......
pease

|

4.3.04

shitting fokk

ég var að laga litina á blogginu og viti menn ég eyddi bara öllu draslinu. kræst.......... þarf að gera alla linka upp á nýtt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

|

3.3.04

tæknin er svo sniðug:-)

það er sko alveg satt. Var að bóka flugmiða frá Köben til Aalborg. Merkilegt??? Nei ekkert svo, bara að kreditkortið mitt er flugmiðinn. Sneddí!

|

ertu að flýta þér?

já, þetta er yfirskrift á auglýsingu sem auglýsir skyndikaffi, Neskvikk! Er hraðinn og stressið í þjóðfélaginu ekki nógu mikið? á fólk núna að skella í sér skyndikaffikaffibolla bara til að drekka það? Ef ég drykki kaffi þá væri það (vonandi) kaffisins vegna en ekki einhver þörf!

Ég hef (næstum) sett allar áhyggjur heimsins til hliðar núna og er byrjuð í átaki. �taki??? hugsa einhverjir. Nei ég er ekki í tíbísku megrunarátaki, ég er í átaki sem snýst um að fara snemma að sofa. Með því að fara snemma að sofa er ekki eins erfitt, þó að það sé erfitt, að vakna á morgnanna. Til að aðstoða mig í átakinu hef ég fengið mér aðstoðarmann sem minnir mig á að fara að sofa. Aðstoðarmaðurinn er minn yndislegi GSM sími. Hann lætur mig vita kl.22:00 að nú eigi ég að fara að bursta tennur, í náttfötin og upp í rúm.

Fólk heldur örugglega að ég sé rugluð!!!!!!

Gleðifréttir: Habbý og hennar heitelskaði Jakob eru að koma til landsins, 12-15.mars. Þá verður kátt í höllinni. Alltaf gaman að fá heimsókn frá útlandinu. Annars var ég vað finna myndir frá því að Habbý kom hérna þarsíðast, haha. � leiðinni kíkti ég á gamlar myndir frá því the Hillside gails voru í hlíðó. Ohhh það er svo fyndið að skoða þær.

Jæja, eg ætla að fara að lesa fyrir tímann sem ég er að fara í á eftir.
Laters......

|

my space

My Spacið mitt

vinir og vandamenn

Þórunn systir
Louisa í DK
Eve online
Guffi
Biggi
Heklurnar
Kristín Tómas
Ómar Framsóknaroddviti

RUVið

G Pétur
Davíð
Dóri
Lovísa og Gurrý
Gummi
Simmi

íslenskan

Svanhvít
Lára formaður
Sigurrós gjaldkeri
Tóta ritari
Tinna
Stígur
Eyrún

bekkurinn minn

Martin Parning
Martin Hjorth
Majbrit
Rivold

hitt og þetta

Drengene fra Angora
Sundfélagið Ægir
Jackie Mbloggar
Skólinn minn
RUV
Mímir
Rjóminn

myndir/billeder

Myndaalbúm
Myndaalbúm2
Afmælis- og Evróvisionpartý 2005
Færeyjar,fyrirparty,djamm a Islandi og DK
Raggi bro i Viborg, djamm i Køben og Viborg
Viborg og Køben m.a. afmæli Oglu
Efterårsferie, Viborg og Vild med dans
Julefrokost og Skolefest
Julefrokost (fredag)
Afmælis- og Evróvisionpartý 2006
Skólinn í Viborg HF 2 - vor/sumar 2007 NYTT

Færeyjarmyndir

Frá føreyingnum
Powered by Pixagogo
Myndir frá Bryndísi
Powered by Pixagogo
Sigurrós
Powered by Pixagogo
myndir fra Siggu
Powered by Pixagogo
Nokkrar myndir frá Eyrúnu
Powered by Pixagogo

Archives

11/01/2003 - 12/01/2003 12/01/2003 - 01/01/2004 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 06/01/2005 - 07/01/2005 07/01/2005 - 08/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008

Powered By



Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com