--> Jackie

JACKIE

 

 

 

 

 

29.2.04

Helgin sem leið

ég er að verða löt að blogga, verð að herða mig. Mér sjálfri finnst leiðinlegt að fara á blogg sem eru sjaldan uppfærð.
Helgin var fín. Vann reyndar alltof mikið og er núna að drepast í bakinu eftir að hafa staðið á bakkanum í Sundhöll Reykjavíkur alla helgina. � föstudaginn vann ég á RUV um morguninn, fór í skólann og heim í 30 mín, þá fór ég í Sundhöllina. Laugardagurinn var tekin snemma. Ég vaknaði klukkan 7 en eins og á föstudeginum þá fór ég á sundmótið. Svo skrapp ég í útsendingu á bikarúrslitaleik kvenna, �BV-Haukar. Fyrir ykkur sem sáu ekki leikinn þá unnu �BV stelpurnar. Eftir útsendinguna fór ég aftur í höllina. Elín Birna bauð svo í afmælismatarboð um kvöldið. Nammi namm góður matur. Takk fyrir mig. Ég lærði líka að borða með prjónum. Þó að ég segi sjálf frá þá er ég orðin bara nokkuð góð! Svo fékk fólkið sér smá bjór og við fórum í drykkjuleik. Við ætluðum að byrja á einhverjum góðum kokteilstað niðrí bæ en það var búið að loka þeim öllum. Við fórum þá bara á Prikið. Það var fínt. Var bara spilað rokk, ágætis rokk samt, meðan við vorum þarna. En mér finnst að Prikið ætti að halda sig við hiphop tónlistina. Við (ég, saga, eva og sunna) fórum svo í röðina á Kaffibarinn. Eftir ógeðslegan troðning og dópista ógeð sem ég hélt að ætlaði að drepa mig ákváðum ég og saga að gefast upp á röðinni og fara bara aftur á Prikið. Það var gaman og þá var líka rétta tónlistin komin á fóninn. � dag vaknaði ég og fór á Sundmót, gamangaman.
Vikan leggst annars bara vel í mig. Ég ætla að fara að byrja á árshátíðarkjólnum í vikunni. Næstu helgi verður maður í sínu fínasta á árshátíðunum tveim sem ég er að fara á. GamanGaman.
Best að ég fari að læra eitthvað, ekkert búin að læra alla helgina. Það er lýgilegt hvað það er stutt eftir af skólanum, ég er búin 6.apríl! shit marr

|

26.2.04

þetta er sko veður að mínu skapi!

Já ég er sko aldeilis ángæð með veðrið úti. Ég elska svona veður. Æði.
Nú er hann Hörður pilot alfluttur heim, gaman gaman. Ég gat ekki vaknað í morgun og sendi því mömmu og pabba að sækja hann. Hann vakti mig svo kl. 7 í morgun með því að hoppa upp í rúmið mitt. Ég hef vaknað betur en ég vaknaði í morgun. Gaman gaman. Svo byrjar þjálfunin hjá honum á morgun.
Þó að það sé bara fimmtudagur þá er helgin fullbókuð, vinna og hin vinnan og afmæli og vinna. Svo þarf ég líka að læra.
Svo er vika í árshátíð, jibbí! ég er ekki byrjuð á dressinu en stefni að því að finna tíma um helgina.
Jæja, tíminn er að byrja, málnotkun svaka gaman...........

|

24.2.04

skíta kuldi

já það er sko skíta kuldi á �slandi í dag. En það er ekki bara skítakuldi úti heldur líka á blessaðri Bókhlöðunni. Ég er að krókna úr kulda hér. Sit við tölvuna í úlpunni og með frosna fingur. Það er alltaf svona kalt hérna. Come on við búum á �slandi þar sem er ódýrt að hita upp húsin. En neinei, ætli hlaðan sé ekki að spara og ákveður að skrúfa fyrir heitavatnið í húsinu.
Ég er að skrifa fréttatilkynningu núna sem ég á að skila á morgun, gildir 20%. Ég er í algjörri krísu get ekkert skrifað. Ég þarf bara að skrifa 10 línur í viðbót þá er þetta komið. Er að pæla í að taka mér hádegishlé áður en ég fer í tíma og vona svo að fréttatilkynningaandinn komi yfir mig.
Annars þá er ég komin í stjórn sundfélagsins, úff ég held að ég sé að ganga fram af sjálfri mér. Ekki eins og ég hafi ekki nóg að gera þá segi ég já við að fara í stjórn. Jæja, það verður að hafa það! Mér leiðist allavegana ekki á meðan:-)
Er farin að fá mér að éta, svo í tíma og svo að halda áfram að stúdera mín fræði.
pease

|

23.2.04

í sveitasælu!

já ég var í sveitasælu um helgina. Ég fór í Aratungu með sundkrakkana í æfingabúðir. Það var fínt að fara aðeins í rólegheit og ekkert stress. Krakkarnir gátu reyndar alveg verið crazy á köflum. Ótrúlegt hvað börn eru ekkert alin upp í nú til dags!!!! En nóg um svoleiðis mál. Ég sólbrann í sveitinni, það kom smá sólarglæta á laugardeginum, hehe!
Annars er nú ekki mikið að gerast. Það er svoldið að gera í skólanum núna þannig að ég á að vera að læra. En svona getur maður verið latur stundum. Ég hefði átt að læra í síðustu viku þegar það var kennsluhlé en ég nennti því ekki þannig að núna er ég komin í tímaþröng með tvö verkefni.
Mamma og pabbi komu heim í gær. úff hvað það var gott að fá þau heim. Það var líka prýðilegt að fá mömmumat í kvöld. Ekki TV-dinner eða vorrúllur og pasta. Ég fékk peysu, bol og þrjá geisladiska frá þeim. Jibbí!
Jæja, er farin að stúdera mín fræði.....

|

20.2.04

jæja þá er ég búin að kaupa efni í kjólinn. ég ætla að halda öllu leyndu nema að efnið er svart -ég elska svart. Ég er reyndar ekkert búin að ákveða hvernig dressið verður en það verður ákveðið á næstu dögum!
Framundan er róleg helgi. Ég er að fara í æfingabúðir með sundliðið mitt. Jibbí! ætli ég nýti ekki tímann bara til að læra, þarf að skrifa fréttatilkynningu og að byrja á að þýða kafla úr einhverri bók. gaman gaman
ohhh ég var að fá sms frá Evu áðan. Hún er á bretti í Austurríki. Svaka gaman hjá henni. En ég þarf ekki að örvænta, ég fer til DK 7.apríl. það verður sko gaman að hitta stelpurnar, Hrefnu,Hildi og Habbý og Gussu.
Góða helgi og gangið hægt um gleðinnar dyr!

|

19.2.04

þá er það árshátíðarkjóllinn!!!!!!!

jæja, þá þarf að fara að vinna í árshátíðarkjólnum í ár! Ég er búin að skoða nokkra kjóla á Netinu hjá frægu stjörnunum. Versta er að da stars eru svo oft í svo efnislitlum kjólum. En ég skoðaði nokkra og mundi gjarnan vilja ykkar álit. Ég ætlaði að gera skoðanakönnun en fann ekki út hvar ég átti að setja hana. Please help!
Hér eru hugmyndir, athugið að ég ætla ekki að kópera kjólana aðeins nota hugmyndir af þeim:
kjóll 1, glætan að ég hafi hann svona fleyginn!
kjóll 2, ekki þessar silfurrendur!
kjóll 3, ætli svona sætur strákur fylgi með!
kjóll 4, pilsið á þessum kjól er nokkuð flott.

|

17.2.04

meistakokkur með vöðvabólgu og í stresskasti

rúm vika síðan ég bloggaði. Ég ætla að byrja á því að skíta yfir það sem ég þoli ekki......
- ég er mjög pirruð út í kennarann minn fyrir að vera með allt of mikið efni fyrir aðeins 2,5 einingar og það er próf á morgun
- ég þoli ekki fólk sem keyrir ekki á jöfnum hraða, það pirrar mig og eyðir meira bensíni
- ég þoli ekki að ég geti ekki sofnað fyrr en klukkan 3 á næturnar
- ég þoli ekki vöðvabólgu
- ég þoli ekki fólk sem talar í símann á bókhlöðunni
- ég þoli ekki fólk sem hefur símann ekki hljóðan á bókhlöðunni

ok. Þá er það búið. Það var reyndar fullt fleira sem ég ætlaði að kvarta yfir. En heppin þið!
Keyrði pilot Hörð Guðmundsson út á flugvöll áðan en hann var að fara ´heim´til Flórída að ná í dótið sitt. Já gleði fréttir hann fékk vinnu hjá Flugleiðum,jibbí!
Ég luma sko á fullt af stórfréttum. Ég sjálf er bara orðin meistarakokkur.
Matseðillinn undanfarna dag: Ameríkan style - Þórunn systir splæsti, daloondagur með hrísgrjónum, dominos mega vika, spagetti með hakki, heimalagaður burger, kjúklingur og hrísgrjón og tómatpasta. Geri aðrir betur. Jackie sem kunni ekki að sjóða pylsur fyrir stuttu er bara búin að elda eins og ég veit ekki hvað. Pilot HG hjálpaði reyndar stundum til. � kvöld verður tómatsúpa, brauð og pasta (ég veit að sumir á íþróttadeildinni brosa ekki vegna kolvetnisneyslu minnar, hehe). Ég stefni á að því að læra að elda humar. Ég fékk mér nefninlega einu sinni humarpasta á Galleleo og shit hvað það var gott. Ef einhver kann að elda humar láta mig vita, takk fyrir.
Jæja, ætla að pjalla mér heim að elda og klára að læra fyrir prófið.
Þangað til seinna...bæjó

|

12.2.04

I got my shit down!

einstæða húsmóðirin með einn kött er ekki lengur einstæð, það er kominn karlmaður á heimilið. En það er ekki eins og þið eflaust haldið, ég er ekki komin með kærasta. Karlmaðurinn er minn háaldraði bróðir Hörður sem býr í henni Ameríkunni. Hann kom heim til að fara í viðtal hjá Flugleiðum, vonum að hann fái vinnu! Það sem einnig er mjög skemmtilegt er að hann átti afmæli á þriðjudaginn og er því kominn á fertugsaldurinn, hehe, gamli kall! Það er mjög skemmtilegt að hafa hann. Við erum að stríða hvort öðru eins og í gamla daga og hann er að kenna mér að tala eins og djamæka-flórídabúar tala. Titillinn á færslu dagsins lærði ég eimmit í dag. jibbí!
Jæja, nú er ég komin í 10 daga skólafrí. En það þýðir ekki að ég sé bara að fara að chilla og be with my homies, ónei. Eg er að fara í próf á miðvikudaginn og þarf að byrja á tveimur verkefnum.
Well ég ætla að læra aðeins áður en ég fer á kosningavöku.
respect!

|

8.2.04

Sunna´s style

Ef þið farið inn á síminn.is þá sjáið þið síma af gerðinni Sony Ericsson T 610 undir liðnum keppni. Sunna hannaði lúkkið á þennan síma. Geggjað töff!!!!!!!!

|

djamm & 16 tíma svefn

já þannig var helgin.
Þvílíkt djamm á föstudaginnn sem olli þvílíkri þynnku á laugardaginn. Fór með Dagmar á bjórkvöld íslenskunnar á Nelly´s. Það var fámennt en góðmennt. Þaðan hélt hópurinn á Grand Rokk þar sem Svitaball Röskvu var og Miðnes að spila. Dagmar fór svo því hún var að fara að vinna og Saga kom. Mikið dansað og mikið drukkið. Ég og Eva kíktum svo aðeins á Prikið og að sjálfsögðu á Kaffibarinn. Vorum þar í einhverju rugli sem endaði með því að Eva hrundi út af Kaffibarnum í orðsins fyllstu merkingu.
Laugardagurinn fór svo í þynnku og vinnu. Var í þýska boltanum, jibbí! Fór svo heim í góðan þynnkumat, KFC og fór svo að sofa. Svaf frá kl. 20 til kl. rúmlega 12 í dag. Ég er búin að vera hálfskrítin í dag. Ætli ég sé ekki bara of út hvíld.
En að öðru. Var að panta mér miða til Danmerkur áðan. jibbí! Fer út 7.apríl og kem heim 18. Er að fara í skírn til bróður míns og ætla svo að stoppa hjá Köbenstelpunum. Það verður ágætt frí fyrir prófið sem ég fer í.
En jæja best að fara að vinna.
Blogg later.

|

5.2.04

ný uppgötvun...........

Já ég er búin að fatta nýtt á netinu. Það er nú ekkert nýtt en það er nýtt fyrir mér! Það eru leikir, nettölvuleikir á t.d. Batman.is. Ég hef séð linka á leiki en aldrei prófað þá sjálf. En í gær þegar ég var að vinna var hann Baldvin í mjög fyndnum leik, ísmaðurinn var með kylfu og reyndi að kasta mörgæs eins langt og hann gat. Very funny. Ég semsagt fór á batman í dag til að prófa nokkra leiki, mér fannst þessi leikur skemmtilegastur. Hann er í takt við lyklaþrautina sem ég linkaði einhvertíman fyrir löngu hér á blogginu. Það sem fyndnasta er að þessi leikur heitir ,,Að pissa fullur" og er undir Hasar og skotleikir. Mæli með honum:-)
En nóg af ómenningu Internetsins.
� dag tók ég þátt í mótmælum. Framboð Röskvu auglýsti mótmæli við Aðalbygginu H� og var myndaður hringur mótmælenda í kringum bygginguna. Þaðan var svo farið í Náttúrufræðihúsið og á fund Menntamálaráðherra. Ég nenni ekki að tjá mig um fundinn þar sem mér fannst hann vera alveg eins og ég bjóst við! En Náttúrufræðihúsið er skrítið. � stofunni þar sem fundurinn var (fyrirlestarsalur) voru bara stólar, reyndar mjög þægilegir, en nemendur þurfa að vera með bækurnar og tölvuna á lærunum á sér. Svo eru heldur engar innstungur fyrir tölvurnar. Annað mjög skrítið var að ef opna átti glugga í stofunni var að klifra upp vegginn til að opna/loka honum eða vera 2,50 á hæð! Ég held nú að enginn Nátturufræðinemi sé svo stór.
Jæja er farin að læra. Svo er mín barasta að fara í klippingu á morgun, komin tími til!!!!!!!!
Þangað til seinna, bæjóspæjó!!!!

|

3.2.04

samkvæmislíf...........

Ég held að ég sé í smá vanda. RUV árshátíðin er 6. mars, ég hlakka til og er meira að segja búin að ákveða dressið þarf bara að fara að sauma. En ég var að lesa einhverstaðar að árshátíð íslenskunnar er líklega líka 6.mars. Hvað gerir maður þá???
Þetta er alveg tíbískt. Afhverju gerist alltaf allt á sama tíma? Hver kannast ekki við að ætla að djamma eitthvað og það er ekkert að gerast, svo er maður kannski ekki búin að plana neitt þá er manni boðið í tvö afmæli, eitt innfluttningspartý og það eru tónleikar sem manni langar á!

|

Jæja, er að gera verkefni á Bókhlöðunni og er að leita í greinasafni Moggans. Ég fann þessa grein þar:

Miðvikudaginn 1. febrúar, 1995 - �þróttir

SUND Stefnt að byggingu 50 mertra innilaugar Fyrir Smáþjóðaleikana á �slandi

MEIRIHLUTINN í borgarstjórn Reykjavíkur ákvað í gær að setja í fjárhagsáætlun ársins að fimm milljónum króna verði veitt í byrjunarframkvæmdir vegna 50 metra yfirbyggðar sundlaugar á þessu ári, og stefnt er að því að laugin verði tilbúin til notkunar þegar Smáþjóðaleikarnir fara fram hérlendis 1997. sögn Steinunnar V. Óskarsdóttur, formanns �þrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, eiga umræddar fimm milljónir að fara í hönnun og undirbúning sundlaugarinnar. "Sundmenn eru búnir að bíða eftir 50 metra yfirbyggðri laug í mörg ár. Við stefnum á að laugin verði tilbúin fyrir Smáþjóðaleikana og vonum að það takist," sagði Steinunn við Morgunblaðið. Ekki kvað hún ljóst hvað mannvirkið myndi kosta, þar sem ekki hefði verið ákveðið hvernig byggingu yrði um að ræða. "Við ætlum okkur að vinna að málinu í samvinnu við sundmennina sjálfa."

Staðsetning laugarinnar hefur ekki enn verið ákveðin. "Það er allt opið í þeim efnum, en tveir staðir hafa reyndar verið nefndir. Annars vegar Laugardalurinn og hins vegar Borgarholtið. Ef Laugardalurinn yrði valinn er hugsanlegt að brúa bilið með þessari laug meðan gert verður við Laugardalslaugina, sem er orðið nauðsynlegt, og ef Borgarholtið yrði fyrir valinu væri hægt að slá tvær flugur í einu höggi því þar þarf að fara að huga að íþróttaaðstöðu fyrir �rmenninga," sagði Steinunn V. Óskarsdóttir.


Það eru ákkúrat 8 ár síðan þetta var skrifað og viti menn laugin er ekki ennþá tilbúin!!!!!!!!!!!!

|

1.2.04

sunnudagar..........................

Sunnudagar eru merkilegir dagar. Maður gerir aldrei shit! Ég fór á sundmótið í morgun. Auðvitað vann Ægir, yeah!!!!!!!! Mínir krakkar stóðu sig bara mjög vel, fullt af bætinum og stuf. Svo kom ég heim og ætlaði að vera geggjað dugleg að læra en sofnaði,zzzzzzzzzzzzz. En ætli maður taki ekki bara á því í kvöld ásamt því að klára LOTR, komin tími til, marr.
Helgin var annars í rólegri kantinum. Fór með Evu á Röskvu skemmtikvöld á föstudaginn og cillaði svo bara heima á laugardagskvöldið. En vá það verður djammað næstu helgi, jibbí!
Ég hef verið að velta fyrir mér hugtakinu draugar fortíðarinnar. Afhverju ætli þeir banki upp á í lífi manns þegar maður alls ekki vill það? Ætli það sé til að vekja mann til umhugsunar eða bara til að hrekkja mann? Furðulegt fyrirbæri.
Well pease out.
Farin að stúdera.

|

my space

My Spacið mitt

vinir og vandamenn

Þórunn systir
Louisa í DK
Eve online
Guffi
Biggi
Heklurnar
Kristín Tómas
Ómar Framsóknaroddviti

RUVið

G Pétur
Davíð
Dóri
Lovísa og Gurrý
Gummi
Simmi

íslenskan

Svanhvít
Lára formaður
Sigurrós gjaldkeri
Tóta ritari
Tinna
Stígur
Eyrún

bekkurinn minn

Martin Parning
Martin Hjorth
Majbrit
Rivold

hitt og þetta

Drengene fra Angora
Sundfélagið Ægir
Jackie Mbloggar
Skólinn minn
RUV
Mímir
Rjóminn

myndir/billeder

Myndaalbúm
Myndaalbúm2
Afmælis- og Evróvisionpartý 2005
Færeyjar,fyrirparty,djamm a Islandi og DK
Raggi bro i Viborg, djamm i Køben og Viborg
Viborg og Køben m.a. afmæli Oglu
Efterårsferie, Viborg og Vild med dans
Julefrokost og Skolefest
Julefrokost (fredag)
Afmælis- og Evróvisionpartý 2006
Skólinn í Viborg HF 2 - vor/sumar 2007 NYTT

Færeyjarmyndir

Frá føreyingnum
Powered by Pixagogo
Myndir frá Bryndísi
Powered by Pixagogo
Sigurrós
Powered by Pixagogo
myndir fra Siggu
Powered by Pixagogo
Nokkrar myndir frá Eyrúnu
Powered by Pixagogo

Archives

11/01/2003 - 12/01/2003 12/01/2003 - 01/01/2004 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 06/01/2005 - 07/01/2005 07/01/2005 - 08/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008

Powered By



Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com