Þá er komið að ferðinni miklu til Rússlands. Legg af stað á morgun og flýg til KBH, ætla að fá mér Tuborg Classic en þarf að vera mætt á Kastrup kl. 8 á sunnudagsmorguninn.
Rússarnir eru búnir að gera dagskrá sem ég er ekkert alltof bjartsýn um að gangi upp...en það kemur í ljós. Planið fyrir Roskilde er komin og stefnir allt í að Jackie mæti á svæðið á sunnudeginum. Ég verð með danska númerið mitt (0045-26923024)þegar ég verð í DK en íslensk í Rússlandi. Endilega hafið sambandi þið sem eruð að fara á Roskilde.
Í gær fékk ég boðskort í brúðkaup sem ég er að fara í ágúst í Esbjerg á vestur Jótlandi. Þegar ég gifti mig, ef ég þar að segja gifti mig einhvertíman, þá verður brúðkaupið mitt eins og þetta sem ég er að fara í.
Dagskráin er eftirfarandi: Hjónavígslan kl. 13, beint eftir kirkjuna er kaffi og brúðarkaka við höfnina. Kl. 17:30 er kvöldmatur og dansiball. Daginn eftir er svo brunch kl. 10.
Kannski ég fari að pakka.
Lifið heil.
Ruski karamba, da!