jæja, þá fer að líða að því. Á morgun mætir maður uppdressaður í 2 1/2 klst. útskrift, neinei brautskráningu, frá HÍ. Svo bara stuuuuð eftir það.
Jæja, ég nenni eiginlega ekki að segja frá brúðkaupinu. Fyrir ykkur sem ekki vitið fór ég í brúðkaup Loga og Svanhildar. Ég er búin að segja frá því ca. 100 sinnum. Það var ótrúlega gaman. Veislan var sko algjört partý. Skemmtilegar ræður og gott ball þar sem m.a. Stebbi og Eyvi tóku Nínu og Björn Jörundur og Eyvi tóku Álfheiði Björk aka Maríu Björk. Þið vitið samt örugglega meira um brúðkaupið en ég ef þið lesið sorprit eins og Hér&nú og DV.
Nú styttist í það að ég fari út til Viborgar. Ohh ég hlakka svo til. Fékk bréf frá skólanum um daginn þar sem staðfest var að ég er komin inn.
Í gær lá ég fyrir framan Sjónvarpið áður en Desperat Houswives byrjaði. Þulan kom og kynnti restina af kvölddagskránni. Þegar hún kynnti Fótboltakvöld sagði hún: ,,klukkan 23:10 taka STRÁKARNIR á Íþróttadeildinni við með Fótboltakvöld". Ég var ekki lengi að hringja í Gurrý sem var að vinna og biðja hana um að vekja þuluna aðeins og benda á að það vinna ekki bara strákar á Íþróttadeildinni. Núna í sumar erum við 5 stelpur sem vinnum þarna!
Að lokum langar mig til að þið lesið ræðuna hennar Kristínar Tómas sem hún hélt á Þingvöllum síðastliðinn sunnudag. Klárið ræðuna og hugsið aðeins út í þetta!
Njótið. Hvað finnst ykkur?