Nýjar myndir/Nye billeder
Hér eru myndir frá Viborg. Það er líka tengill undir Myndir/Billeder hér til hægri.
Her er billeder fra Viborg. Se også under Myndir/Billeder her til højre.
Ég ákvað að setja inn myndir til þess að bæta upp bloggleysið mitt undanfarið. Síðasti skóladagur var 15. júní og er ég búin að vera í sumarfríi síðan. Var í KBH í viku. Svo kom systir mín og dóttir. Við leigðum okkur bílaleigubíl (fengum einn 7 manna bíl því bíll í þeim flokki sem við pöntuðum var ekki til) og keyrðum til Ragga bró með stoppi í Legolandi.
Svo eftir langa og stranga leit með hjálp margra náði ég mér svo í miða á Hróaskeldu... sem betur fer! Þannig að í næstu viku pakka ég mér inn í regngalla. Spáin er því miður ekki góð en spilleplanið er komið og það er gott!
Ég kem svo heim 10. júlí, aðeins 2 vikur í það:-) Ég hlakka til að koma heim en ég verð samt að viðurkenna að það eru blendnar tilfinningar því ég er búin að vera svo lengi úti og það er svo stutt þangað til ég fer út aftur!
En þangað til næst...