Ice Ice Baby...
Seinni partinn í dag hef ég verið í mjög miklu tussuskapi. Tussuskapið þýðir að ég get verið frekar leiðinleg og köld við fólk. Ég veit ekki hvort það sé bara dagurinn í dag eða kuldinn úti sem kom mér í þetta skap.
Blautri tusku var hins vegar slegið framan í mig þegar ég labbaði inn í eina búð. Ég var nýbúin að skafa að bílnum og bíllinn þar af leiðandi ískaldur. Ég kem inn í búðina og fæ afgreiðslu. Þegar ég er að borga segir afgreiðslukonan: ,,Það kom svo mikill kuldi með þér inn. Það gustar alveg af þér." Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta og sagði afsakandi: ,,já, það er svo kalt úti". Ég labbaði rösklega út og ætla ekki að fara aftur í þessa búð nema í góðu skapi.