--> Jackie

JACKIE

 

 

 

 

 

31.5.04

Jæja, þá er þriggja daga helgi á enda. Þessi helgi var alveg ágæt þó að ég hafi alveg lifað þær skemmtilegri. Fór á föstudaginn í partý til Þórunnar systur minnar sem var 35 ára. Gaman, endaði með því að tjútta með lyfjafræðinemanum Bergþóru sem vinnur í Apótekinu hjá Þórunni. Gaman að kynnast nýju fólki. � laugardaginn var ég að vinna og fór svo í stúdentsveislu til Hafdísar sÆði. Það var fínt, frír bjór og hvítvín og mamma hennar var sko ekkert að spara ölið oní okkur. Fór svo með Dagmar og Völu í byen. Það var fínt. Fínt líka að djamma bara til 3 einu sinni. � sunnudaginn fór eg upp í bústað. Ég held ég hafi sofið 80% af tímanum sem ég var þarna. Kom um kl. 16 eftir góða sundferð á Selfossi og svaf frá kl. 17-20.30. Svaf svo í 12 tíma í nótt. Svaf á leiðinni heim og svaf þegar ég kom heim, svo er ég að fara að sofa núna, sofa sofa sofa. vá en mér veitti sko af þessu. Er búin að halda mér gangandi á einhverri óútskýrðri orku. Ég ætla í átak núna (í 100skiptið) og fá smá lit í andliðið svo ég hætti að vera eins og Morgunblaðið í framan. Hugsið ykkur kommentið sem maður fær frá mömmu sinni.

Það styttist í að dönsku stelpurnar komi, jibbí! en ég er eimmit búin að setja inn á dagatalið ,What´s Jackie doin´!´ svona það sem ég man. EM eftir 2 vikur og það er massa mikið að gera í vinnunni...ég er komin upp á RUV núna.

Jæja, Óli Lokbrá er komin í heimsókn. Góða nótt!

|

26.5.04

Afsakið! Þessar upplýsingar eru aðeins fyrir fagnotendur, sem nota Virkra vefmælingu.

Ég er búin að pæla geðveikt lengi í þessu! Ég er kannski orðin bara svo íslenskusýrð en þetta AFSAKI�! skil ég ekki. Eins og þeir hjá teljari.is séu geðveikt sorry yfir því að ég sé bara með fría áskrift og geti því ekki valið einhverja vissa aðgerð. Þeir eiga einfaldlega að sleppa þessu AFSAKI�! Þar að auki á ekki að vera komma á eftir fagnotendur. og hananú.

Annars er lítið að frétta. Helgin er ekki fullbókuð þannig að ef þið viljið panta tíma endilega hafið samband. Þórunn stóra systir á afmæli á föstudaginn, hún er 35 ára. Það eru ekki nema 4 dagar á milli okkar og hennar helsta áhyggjuefni var áður en ég fæddist að ég mundi fæðast á afmælisdaginn hennar og ég mundi taka alla athyglina. En auðvitað gerði ég það ekki, ég er svo góð! � laugardaginn er landsleikur kvenna, útsending hefst kl. 15:50. Þar getið þið séð ofurskriftuhæfileika mína í beinni! Svo fer ég í stúdentsveislu til Hafdísar sÆði. Hvenær er annars mæting Hafdís? Ég býst nú ekki við mörgum í bænum þar sem margir eru að fara í sumarbústað. Ég er með sumarbústað í plani B, þá frá þunnudegi til mánudags.

Gussa var að setja inn íslandsmyndir, nokkrar úrvalsmyndir frá afmælinu mínu, check it! Svo eru líka nokkrar myndir frá því ég var í Köben. Hrefna, I´m still waiting for ya picta!

Well, ég ætla að fara maka monný!

Peaze

|

25.5.04

Allir þeir sem óskuðu mér til hamingju með afmælið í gær, sendu SMS, hringdu eða notuðu einhverja aðra boðleið eru komnir efst á vinsældarlistann minn! Þið hin, tja, þið verðið að vinna ykkur upp. Annars fékk ég franska súkkulaðiköku í gærkvöldi, nammmmmm! Ég fékk líka afmælisgjafir; fékk gjafakort á geisladisk frá pilot HG, bol frá mömmu og pabba og hálsmen og armband frá Þórunni og Rebekku. Ég má víst ekki gleyma Barbie kortinu sem Rebekka valdi sérstaklega handa mér! Annars var mútta í Hamborg með vinkonum sínum um daginn og getiði hvað hún gaf okkur systkinunum? Viskustykki!!!!! Ég held að hún sé að gefa mér og pilot HG tákn um að við eigum að flytja út, hehe. Ég fer ekki strax, Hótel Mamma er ***** hótel. Annars er þetta viskustykki annar hluturinn sem ég fæ í búið, ég fékk tissue stand í jólagjöf. Ég er bara að verða klár í slaginn.

Annars er ég að pæla í að fara heim eftir hádegi og leggja mig. Ég er ekki orðin alveg nógu góð af þessum hósta. Ég þarf líka að undirbúa mig undir átök kvöldsins. Kvöldið byrjar á stjórnarfundi þar sem ég ætla að vera með læti...kannski ekki læti en ég ætla að láta í mér heyra! og svo verð ég að kveðja mínar ástkæru vinkonur,Evu og Sunnu, en þær eru að flýja til Bandaríkjanna frá mér. Hugsið ykkur. En það er ekki langt þangað til ég get farið að ofsækja Habbý og Hildi því þær fara að koma, jibbí!

Jæja, ég er hætt þessu rugli. Ég ætla að taka til nokkrar pantanir áður en ég fer í mat!

Peaze

|

24.5.04

Ég á afmæl´ í dag, ég á afmæl´ í dag, ég á afmæl´ ég sjálf, ég á afmæl´í dag!

og þar hafið þið það! � dag er merkisdagur, ég á afmæli, shit and I´m gettin old, 22! Mér finnst gaman að eiga afmæli. Dagurinn hófst í nótt þegar ég gat ekki sofið vegna hósta sem ég er búin að hafa síðan á fim/fös. Klukkan hálf átta var morgunkaffi með bakarísmat, shit hvað ég fíla það. Svoleiðis morgunmat væri ég til í að fá alla morgna. Svo hélt ég áfram að hósta og reyna að sofa. Ég ætla að fræða ykkur um hvað gerðist næst (ég má allt því ég á afmæli) ég ældi slími í rúmið mitt!!!!! það var ógeðslegt. Ég ætla að sótthreinsa rúmið mitt í dag. Ég fór þá bara og lagði mig hja mömmu og pabba, það var mjög fínt því þá náði ég að sofna. En allavegana þá hefur þetta ekki verið skemmtilegasti afmælisdagurinn hingað til. Ég hef aldei verið veik á afmælisdaginn minn en hins vegar hefur alltaf verið svona gott veður! Þetta fylgir mér bara, hehe. Afmælisgjöfin frá familíunni kemur víst seinna í dag, ætli ég biðji ekki mömmu um að borga lækniskostnaðinn fyrir mig í afmælisgjöf, hehe, þá spara ég mér peninginn sem ég á ekki. En ég er búin að fá bol frá stelpunum og sokka og armband frá Helgu ´litlu´ frænku.

Njótið dagsins krakkarnir mínir, allavegana ætla ég að gera það besta úr honum.

p.s. það má alveg hafa samband, mér leiðist.
p.p.s. Bob Dylan á líka afmæli í dag.

|

23.5.04

I´m walking on sunshine.......

shit hvað ég fíla veðrið núna. Sit úti í garði með tölvuna og er að stykkna úr hita. Helgin var barasta fín fyrir utan þessa blessaða rigningu eða gróðurskúr eins og sumir vilja kalla þetta fyrirbæri. � raun byrjaði helgin á miðvikudaginn, vá hvað ég fíla svona plat föstudaga. � alvöru föstudaginn fór ég í stúdentsveislu til hennar Louisu sem var að æfa með mér. Það var fínt. Ég fór snemma heim, að deyja úr slappleika og hósti og svo þurfti ég að mæta á sundmót kl. 8 um morguninn. � gær fór ég í tvær stúdentsveislur, fyrst til Hildar Sólveigar sem var líka að æfa með mér og svo til Helgu ,litlu´ frænku. Það var fínt. Ég fór svo aðeins heim áður en Sunna sótti mig og við fórum og hittum listaháskólavini hennar áður en við kíktum í bæinn. Ég var reyndar frekar rólega á því en skemmti mér samt sem áður vel. Eva hitti okkur svo á Prikinu. Að venju var endað á Kaffibarnum. Rúsínan í pylsuendanum var pylsa með miklum steiktum, tómat og sinnep á Select, namminamm.

Næsta helgin verður jafn góð ef ekki betri, hún er heilir 3 dagar!!!!!!!!!! Shit. Ein stúdentsveisla eftir og hún er á laugardaginn hjá henni Hafdísi sÆði (nafnið er löng saga). Jæja ég ætla að fara inn og skella mér í hlýrabol, það vantar bara sætu strákana og sundlauginna þá væri þetta geggjað.

|

20.5.04

þynnkudagur

ojjj ég var þunn í dag. Er að vinna núna og birgði mig upp af nammi og kóki til að líða betur. Það var fjör á RUV-o-vison. Ég kom allt of seint og missti af atriðunum því ég var að þjálfa. En nóg var fjörið og ómuðu ýmis evróvisionlög fram eftir kvöldi. Seint um síðir fór ég í bæinn með liðinu. Bærinn var fínn. Ég hef ekkert meira að segja þar sem ekkert er búið að gerast í dag nema ég er búin að sofa....allavegana reyna það!

|

19.5.04

Allt að gerast í Hamraborginni

já, það er sko allt að gerast hér í Hamraborginni. � morgun komu tveir löggubílar að húsinu á móti. Eftir u.þ.b. klukkutíma kom löggan út með eldgamla kallinn sem býr á efstu hæðinni í blokkinni. Hann var skrítinn; með ferðageislaspilara um hálsinn, sjalatösku og staf! Ég fór svo í bakaríið og heyri þá að ein afgreiðslukonan í Hamragrilli er í meðferð. Hugsa sér! Allt að gerast í steinhjarta Kópavogs. En nóg að slúðri, ég ætla að halda áfram að gera eitthvað í vinnunni.

RUV tjútt í kvöld! jibbí!!!!!!!!!!!!

|

18.5.04

yo!
Var að sjá á Hiphop-Huga að enginn annar en meistarinn RDJ2 er búin að boða komu sína á Klakann 10. júlí. Ég fór að gráta! Ég kem ekki heim frá Hróaskeldu fyrr en 13.júlí. Það eru víst fleiri sem verða ekki komnir heim af skeldu. Ég krefst þess að showinu verði frestað um viku. Shit ég sá kauða í London fyrir rúmu árið síðan, shit hvað showið var geggjað. Ég get bara ekki komið því í orð.

En allavegana þá er tjútt á morgun því ég þarf að standa á sundlaugarbakkanum um helgina á sundmóti. � morgun er RUV-o-vision, það verður geggjað!

Ég er farin að finna dökkt efni til að setja fyrir gluggan þannig að mín geti sofið.
Laters.

|

17.5.04

9,5/10

Þessi dagur er ekki mánudagur heldur mygludagur, shit marr! Ekki mikið að gera í vinnunni heldur.
Helgin fær 9,5 af 10 mögulegum, shit hvað hún var skemmtileg. � föstudaginn bauð ég stelpnum í afmælismat. Gussa kom sem leynigestur. Svo komu góðir vinir í heimsókn til að fagna með mér öllum þessum árum sem ég hef lifað.
Laugardagurinn byrjaði á landsleik, �sland-Danmörk í kvennahandboltanum, ágætur leikur. Svo fór ég í Hafnarhúsið og sá tískusýningu hjá fatahönnunarnemum í Listaháskólanum. Sunna var með föt. Flott marr. Ég fór svo með Evu í geggjað partý með gamla bekknum hennar. Evróvisionleikurinn var mjög skemmtilegur. Allir settu 500 kall í pott og drógu land. Ef landið manns vann fékk maður pottinn. Ég vann ekki. Eva dró Noreg fyrir mig og var ég því í síðasta sæti. En ég get huggað mig við máltakið óheppin í spilum heppin í ástum. Eftir keppnina var mikið tjúttað. Ég held að ég hafi bara aldrei dansað svona mikið. Við fórum svo í bæinn, Kaffibarinn, Vegamót, sem var rafmagnslaus og Prikið. Ég og Gussa fengum okkur svo mjög góða pulsu á Selct á leiðinni heim en þá var klukkan orðin mjög margt.
Sunnudagurinn var rólegur. Helgarsport og fótboltakvöld. Alltaf gaman í vinnunni!

Jæja, best að athuga enn einu sinni hvort ég sé búin að fá einhverja einkunn. Ég er að verða brjáluð á því hvað þetta tekur langan tíma hjá þessum blessuðum kennurum!

|

14.5.04

Allir að skrifa undir!

�skorun.is

|

10.5.04

Batnandi manni er best að lifa!

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég er ekki rifbeinsbrotin, sem er mjög gott mál. The doctor sagði mér í gær að ef verkurinn versnaði þá væri ég brotin annars BARA illa marin. Ég er ekki frá því að mér er ekki eins illt í dag og mér var illt í gær. Gott mál.

|

9.5.04

Rifbeinsbrot

Ég fór í heimsókn til Dagmar og Danna í gær. Það var fínt. Þau voru svo góð að leyfa mér að gista í nótt og sparaði ég, fátæki námsmaðurinn, mér leigubíl heim. Eftir nokkra bjóra fóru ég og Dagmar í bæinn. Fórum út um allt, Hverfis, Prikið, Arann, Vegamót og verst skemmtistað borgarinnar, Felix. Þegar við vorum á Felix var klukkan orðin annsi margt. � leiðinni út var ég með skemmtiatriði, ég hrundi í stiganum á dansgólfinu. Það var mjög vont og er ennþá mjög vont. Ég ákvað því að fara til læknis og þá kom í ljós að ég er sennilega rifbeinsbrotin, en það kemur í ljós á næstu dögum. Ef ég versna þá er ég brotin annars illa marin. Ekki skemmtilegt! Ég hef heitið því að fara ALDREI aftur á þessa skítabúllu! Þessi staður var líka skítabúlla fyrir þetta atvik.

Jæja, þá er bara málið að dópa sig upp af verkjatöflum svo ég geti andað án þess að meiða mig.

Lifið heil.

|

8.5.04

Laugardagur

ég er alveg ótrúlega ófrumleg í fyrirsögnum á blogginu þessa dagana.
Ég fór á tjúttið í gær, það var stuð. Ég og Eva byrjuðum á pöbbarölti og enduðum á hverfis, já hver hefði getað trúað því? Eftir létta danssveiflu með samstarfsmönnum Evu í �saksskóla fórum við á kaffibarinn og hittum Sunnu. Alltaf góð partýstemmning á Kaffibarnum. Hitti fullt af fólki....fullt nei eiginlega ekkert marga því það voru ekkert svo margir í bænum. Ég og Eva fórum svo á Prikið og tókum tveggja tíma danssession. Þar var ógeðslegur gaur utan í okkur, frekar skrýtinn gaur. Eftir að hafa verið utan í okkur í frekar langan tíma og orðinn ansi ágengur á Evu ákvað ég að tala viði dyravörðinn og biðja hann um að henda gaurnum út. Dyravörðurinn henti vitlausum gaur út, en sá fékk að koma aftur inn. Sunna kom svo á prikið. partýpartý.

� dagskrá kvöldsins eru nokkrir bjórar í góðum félagsskap, þ.e. með Dagmar. Atriði í þættinum eru ekki við hæfi ungra barna.
Hehe ég ætti kannski bara að sækja um sem þula upp á RUV..........................eða ekki.

Minni á Haukar-Valur á morgun. Leikurinn verður sýndur á RUV en það er miklu skemmtilegra að fara á völlinn!

Góða skemmtun.

|

7.5.04

Flöskudagur

Þetta er gamall leiðinlegur brandari, þetta er ekki einu sinn brandari lengur!

� kvöld verður farið á barinn, jibbí! � dag er bardagur. � kvöld er stelpudjamm!
Ég á frí þessa helgi, fyrsta helgin í langan tíma. Ég þarf ekki að gera shit og það er góð tilfinning.

ég er farin að horfa á Granna.

Sjáumst á barnum!

|

...........

Ég grét ekki þegar ég sá Titanic í bíó en ég sat með tárin í augunum yfir síðasta þættinum af Sex and the City.

Ég er búin að sitja hér fyrir framan tölvuna í næstum 2 klukkutíma og leita að nýju lúkki á bloggið mitt. Ég finn ekkert sem mer finnst flott! Pleaze help me!

Ég er farin að sofa........góða nótt

|

4.5.04

Nótt hinna biluðu prentara

Já í gær klukkan eitt eftir miðnætti skilaði ég lokaverkefninu í Textagerð (eins gott að kennarinn lesi þetta ekki því það var skilafrestur til miðnættis). Ég kláraði verkefnið um hálf ellefu. Ég ákvað að prenta verkefnið út í Odda því ég er ekki með leiserprentara hér heima, auk þess sem ég átti ekki blöð. Mamma skutlaði mér út í Odda. Neinei þá var tölvustofan lokuð og læst. Ég og mamma brunuðum því í vinnuna til mömmu til að ná í blöð og svo heim til að prenta. Ég prentaði út og las yfir. Ég ætlaði svo að prenta verkefnið út til að skila því en neinei þá fór prentarinn að stríða mér. Klukkan korter í eitt fór ég í Vesturbæinn og skilaði verkefninu. Ég er búin að vera í spennufalli síðan. Ég var ólýsanlega þreytt og ákvað því að fresta því að byrja að vinna í dag þangað til á morgun. Ég notaði hins vegar daginn til að þrífa Höllina. Ég get svo svarið fyrir það að ef heilbrigðiseftirlitið hefði komið hingað þá hefði það lokað húsinu. En nú er orðið hreint og fínt í Höllinni.

Sáðu þið �BV-Val áðan, shit marr góður leikur! Næsti leikur er á fimmtudaginn og að sjálfsögðu í beinni á RUV!

|

2.5.04

Haukar-Valur

Ég var ekki sátt við valið á leiknum sem var sendur út í dag, Haukar-KA. Þessi leikur var ekkert spennandi. Ég hefði viljað vera í Valseheimilinu. Reyndar hefði þá öll dagskráin farið til fjandans en leikur eins og Valur-�R í dag er leikur sem fólk vill sjá!

Fór á einu geggjuðustu tónleika sem ég hef farið á á föstudaginn, Afu Ra, shitt marr! Ég fann engan sem vildi fara með mér (vinir, ha??) þannig að ég ákvað að skella mér bara. Aðgerðarleysi?! nei takk ekki í mínu lífi. Ég skemmti mér geggjað vel. Einhverjir voru að væla um að hljóðkerfið hefði ekki verið nógu gott og kauði hefði verið eitthvað freðinn en það truflaði mig ekki. Ég kíkti svo á Sunnu sem var á árshátið en fór snemma heim!

� morgun klára ég mitt fyrsta ár í háskóla. Ég hef frest til að skila verkefni í Textagerði til miðnættis annað kvöld og sá frestur verður vel nýttur. Ég á alveg helminginn af verkefninu eftir.

Jæja, ég er farin að vinna. Það er betra að gera eitthvað gagn hérna.
Peaze

|

Nýtt nýtt!

Ég var að búa til dagtal sem nefnist What´s Jackie doin´?

|

my space

My Spacið mitt

vinir og vandamenn

Þórunn systir
Louisa í DK
Eve online
Guffi
Biggi
Heklurnar
Kristín Tómas
Ómar Framsóknaroddviti

RUVið

G Pétur
Davíð
Dóri
Lovísa og Gurrý
Gummi
Simmi

íslenskan

Svanhvít
Lára formaður
Sigurrós gjaldkeri
Tóta ritari
Tinna
Stígur
Eyrún

bekkurinn minn

Martin Parning
Martin Hjorth
Majbrit
Rivold

hitt og þetta

Drengene fra Angora
Sundfélagið Ægir
Jackie Mbloggar
Skólinn minn
RUV
Mímir
Rjóminn

myndir/billeder

Myndaalbúm
Myndaalbúm2
Afmælis- og Evróvisionpartý 2005
Færeyjar,fyrirparty,djamm a Islandi og DK
Raggi bro i Viborg, djamm i Køben og Viborg
Viborg og Køben m.a. afmæli Oglu
Efterårsferie, Viborg og Vild med dans
Julefrokost og Skolefest
Julefrokost (fredag)
Afmælis- og Evróvisionpartý 2006
Skólinn í Viborg HF 2 - vor/sumar 2007 NYTT

Færeyjarmyndir

Frá føreyingnum
Powered by Pixagogo
Myndir frá Bryndísi
Powered by Pixagogo
Sigurrós
Powered by Pixagogo
myndir fra Siggu
Powered by Pixagogo
Nokkrar myndir frá Eyrúnu
Powered by Pixagogo

Archives

11/01/2003 - 12/01/2003 12/01/2003 - 01/01/2004 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 06/01/2005 - 07/01/2005 07/01/2005 - 08/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008

Powered By



Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com