...er fæðingadagur freslarans, þ.e. fæðingadagur minn.
Hélt partý á laugardaginn. Það heppnaðist vel. Takk kærlega fyrir mig, þetta var mjög skemmtilegt kvöld. Bollan heppnaðist vel og var mjög ljúffeng...kannski of? Er að henda inn myndum. Á leiðinni heim lenti ég í einhverjum ógeðisleigubílstjóra sem keyrði mjög skrýtna leið heim....en ég er heil og ekkert gerðist.
Í nótt svaf ég vel. Það var gott. Það er svoldið síðan sem ég hef hvílst svona vel. Ælti ég stækki eitthvað í nótt? Ég væri alveg til í 2-3 cm í viðbót.
Nú bíður maður bara eftir einkununum. Tvær komnar í hús. Alveg sátt við þær. Á eftir að fá úr út prófinu sem mér gekk verst í.
Nú eru allir að plana sumarið. Sumarið mitt verður ekki langt á Íslandi.
En planið er komið hér....
27. maí afmæli hjá Þórunni systir
28. maí útskrift hjá Sunnu frá LHÍ og stúdentsveisla hjá Völu Rún
3. júní afmæli hjá Habbý
4. júní laus...að mig minnir
10.júní laus
11.júní laus
17.-19.júní útilega
24.júní slappa af
25.júní útskrift
1. júlí laus, ætlaði í útilegu en stefnir allt í að ég þurfi að vinna
2. júlí laus, ætlaði í útilegu en stefnir allt í að ég þurfi að vinna
8. júlí laus
9. júlí laus
15.júlí Dagmar vorum við ekki eitthvað að plana þá?
16.júlí DJAMMDJAMMDJAMMDJAMM síðast helgin mín á Íslandi í 3 mánuði því ég fer út um 20. júlí
Ég held ég sé að gleyma einhverju. En það er alveg fullt laust. Jibbí! Ég er farin að skúra.
Þetta var súr póstur
Lakers