júhú
vá hvað það er kominn tími til að blogga. Það er búið að vera svo brjálað að gera í vinnunni. Í rauninni á ég ekkert að vera að blogga, ég á að vera að skrá spólur!
Var að ná í spólur inn á safn áðan þar sem Jón Páll sprengir hitapoka í Hemma Gunn um 1990. Hann sprengdi hann með því að BLÁSA hann upp! Svo fundum við myndir þar sem hann er að sýna sína STÓRU vöðva og setur Evrópumet í réttstöðulyftu og segir hin frægu orð ,,Ekkert mál fyrir Jón Pál!"
Útilega á Snæfellsnesið er málið þessa helgi. Það er spáð góðu veðri, tékkit! Nú er bara að viðra tjaldið góða sem bjargaði lífi mínu, Guðmundu, Öglu og Hauks á Hróaskeldu í fyrra, fara í Ríkið, pakka lopapeysunni og kaupa grillmat! Ég hlakka mjög mikið til!
Ekki mikið eftir af vikunni. Á morgun fer ég í brúðkaup. Ég hlakka til!
<< Home