og hvad saa?
Ég þakka kærlega öllum þeim sem mættu og fögnuðu með mér útskriftinni á laugardaginn. Vá hvað það var gaman. Endaði á NASA og þar var sko dansað fram á rauða nótt!
Núna er allt að gerast. Ég fór í sund áðan og tók 1000 m útrás. Vá hvað ég þurfti á því að halda. Svo er mæting í Nautilus eftir vinnu á morgun. Nú skal ég drulla mér til þess að hreyfa mig.
Það styttist í það að ég fari út. Ég er spennt en samt eitthvað smá stressuð. Ég hlakka til að taka alveg þetta 5 daga sumarfrí í Köben hjá Ölgu áður en ég byrja í skólanum.
Ég er farin að sofa, zzzzzzzzzzzzzz!
<< Home