ÉG ER BÚIN Í PRÓFUM, jiha!
já ég er búin í prófum og það er gaman. Fórum eftir prófið í dag í bjór og mat á stúdentakjallaran. Það var líka gaman.
Það gekk ágætlega í prófinu í dag fyrir utan eina spurningu sem enginn gat. Shit, hvað þar var leiðinlegt.
Mér gekk illa í prófinu á mánudaginn. Ekkert smá svekt þar sem ég var búin að læra í 102 daga fyrir það. En svona er lífið. Þetta voru umfram einingar þannig að ég ætla að reyna að fá að taka þær út.
En nóg að svona vitleysu, nú er bara sumarið og svo Danmörk, her kommer jeg.
Helgin er svo fullbókuð. Á morgun er sumarhátíð RUV. Langt síðan það hefur verið RUV djamm á Markhúsartorgi. Jibbí. Á laugardaginn er svo próflokadjamm Mímis. Sunnudagurinn verður tekinn í tjill og svo er ég að fara að vinna allan mánudaginn.
Ég ætla að fara að gera eitthvað sniðugt, jibbí!
<< Home