Ég er á 100 degi að læra fyrir þetta blessaða Íslendingasögupróf. Prófið er á mánudaginn út í ÖSKJU! Hvað er það? Ég vil taka mín próf í mínum höfuðstöðvum í Árnagarði. Ég er búin að fá tvö áföll á nokkrum dögum og heldur það mér gangandi að læra fyrir þetta blessaða próf. Ég fékk frekar lélegar einkunnir fyrir verkefnin í Íslendingasögunum. Þar af leiðandi hef ég komist endanlega að því að bókmenntir eru ekki alveg fyrir mig. Ég ætla samt einhvertíman að klára B.A. gráðuna í íslensku. Ég er meira fyrir verklegt....það er einmitt það sem ég er að fara að gera næstu 4 árin, jibbí!
Ég á afmæli eftir 17 daga og í tilefni þess verður partý hjá mér 21. maí. Ég hélt einmitt partý síðast þegar Selma keppti, ég held að ég sé happa. Það eru líka ýmsir aðrir atburðir sem gerðust í þessu partýi en verða ekki settir á þetta blogg. Mig langar í Trabant diskinn í afmælisgjöf.
En það þýðir ekkert að hanga og blogga þegar hetjur og fræðimenn Íslendingasagnanna bíða.
Niður með raunveruleikasjónvarp og PDF skjöl!
<< Home