Hey, hvar er Mæja?
22.1.07
|14.1.07
Ég var að fá tölvupóst.
Hi. I am irina, 25 y.o.,
I am looking for man for long-term relations
I am from Russia, I live in St-Petersburg
are you going to visit Russia?
please let me know if you have interest,contact me here: ég gef ekki upp adressuna
Mér finnst nú lágmark að fólk kynni sér hvers kyns maður er áður en það nánast biður mann um að giftast sér.
Annars er Sankti Pétursborg alveg yndisleg borg. Væri alveg til í að fara þangað aftur.
11.1.07
Ryksugan á fullu...
Já, það er nóg að gera.
Út janúar mánuð á þetta hérna hug minn allan og einnig 80 ára afmælisrit sundfélagsins.
Annars er ég byrjuð á átaksnámskeiðinu, jiha!
2.1.07
Í dag er góður dagur. Ég á pólóinn minn 100%. Í dag borgaði ég síðastu afborgunina og var hún borguð við litla afhöfn heima í stofu. Í leiðinni borgaði ég tryggingarnar af bílnum fyrir árið. Í dag er ég því alveg skuldlaus fyrir utan fáa þúsundkalla á næsta VISA reikningi. Það er gott að vera Ríkisstarfsmaður og eiga nóg að peningum.
Í tilefni dagsins fylgja tvær myndir af linkakonu Ríkissjónvarpsins.
1.1.07
GLEÐILEGT ÁR!
Þó að árið hafi byrjað á mánudegi leggst þetta ár bara ágætleg í mig.
Árið er ár stórafmæla þar sem margir vinir og kunningjar verða 25 ára. Ég hlakka bara til að verða 25 sérstaklega þar sem haldið verður upp á það í landi bjórsins, Danmörku! Þið ættuð því að fara að spara fyrir Köbenferð. Afmælið verður mjög líklega í júní þar sem Danir eru nastí og halda stúdentum sínum í skólanum langt fram á sumar.
Annars finnst mér lítið hafa gerst á árinu 2006. Þegar ég leit yfir farin veg komst ég að því að ég hef gert alveg heilan helling. Ég fór m.a. allt of oft til útlanda; fór til Kanarí, þrisvar til Danmerkur og til Rússlands. Ég keypti bíl og fór á honum hringinn. Í leiðinni fór ég á tvenna tónleika, Sigurrós í Öxnadal og Belle and Sebastian á Borgarfirði eystri. Ég vann heilan helling og lærði fullt.
Ég reikna með að utanlandsferðirnar verði færri á þessu ári þar sem ég verð í skólanum í tæpa þrjá mánuði í sumar - það er reyndar ein löng utanlandsferð.