Já það er sko komið langt fram í nóvember. Það er mánuður síðan ég skrifaði á þetta blogg og það er mánuður til jóla.
Það er nú ekki mikið að frétta af mér nema að ég er á haus. Það er svo brjálað að gera. Ég hlakka til að fá lífið mitt aftur í enda janúar. Það er svo mikið að gera og ég og aðrir stressa mig upp þannig ég kem ekki eins miklu í verk og ég ætla. En það er lítill tími til stefnu fyrir mörg verkefni þannig að það er eina sem hægt er að gera er að vinna undir pressu.
Að lokum vil ég að lesendur mínir kommenti undir nafni eða sendi mér allavegana línu um að viðkomandi skrifi undir viðkomandi dulnefni! Ég vil heldur ekki vera kölluð kjélling.
Ég kveð ykkur að sinni.
<< Home