East 17
Vá hvað ég mundi allt í einu eftir ,,hljómsveitinni" East 17. Ég fílaði þá nú reyndar aldrei fyrir utan eitt lag sem ég man ekki einu sinni hvernig var. Svo fyrst ég er byrjuð að tala um boybands sem voru vinsæl þá er ágætt að minnast á það að ég væri alveg til í að fara á comback tónleika Take That þegar þeir verða haldnir. Ég viðurkenndi reyndar ekki dýrkun mín á þeim fyrr en þeir voru hættir en þá fékk ég, eins og margar aðrar 12 ára stelpur á þessum tíma, Mark úr TT á heilan!
Tilgangur þessa bloggs var nú ekki að segja ykkur frá gelgjuskeiðinu mínu (ég var reyndar aldrei gelgja) heldur að láta ykkur vita af því að síðust helgina í júlí verð ég á Borgarfirði eystri. Já ég keypti miða í dag á Belle&Sebastian og verða miðarnir komnir í F2 á morgun! Í tilefni þess ætla ég í Útilíf (lestist SKÍTALÍF!) á morgun og ná í tjaldstöngina sem brotnaði í skemmtilegri útilegu á Arnarstapa síðasta sumar. Ef tjaldstöngin verður ekki fullkomin í Skítalífi á morgun munuð þið heyra í fréttunum á morgun að ung stúlka hafi ráðist á starfsmann Skítalífs með tjaldstöng. Þetta er nefninlega í þriðja skiptið sem ég fór með blessuða stöngina...ég er orðin svoldið þreytt á að fá skíta svör. Besta skíta svarið var að ég ætti nú eiginlega bara að kaupa mér nýtt tjald, þetta tjald kostaði nú ekki nema 10.000 kr., í staðin fyrir að fá nýja tjaldstöng! Sumt fólk á ekki að vinna í þjónustustarfi.
Ég ætla bara að minna ykkur á KR-Val í Landsbankadeild kvenna á morgun kl.15:50 að sjálfsögðu í Ríkissjónvarpinu...svona ef þið nennið ekki að horfa á HM!
<< Home