You´ll be a terrible mother and a terrible wife!
Þetta er í alvörunni komment sem ég fékk um helgina! Heheh mér finnst það eiginlega bara mest fyndið. En kannski er þetta satt? Grey maðurinn minn (ef ég eignast einhvertíman einhvern!) og börnin mín (ef ég eignast þau líka einhvertíman).
Annars er bara mest lítið að frétta. Það var algjört æði á Kanarí. Væri alveg til í að lifa svona afslöppun og fá góða summu inn á reikninginn minn reglulega. Dagskráin yfir daginn var að vakna um tíu leytið fara út í sólbað. Svo á kvöldin var farið út að borða. Ég nenni ekki að skrifa Slow boat söguna en þeir sem vilja heyra hana spurja mig bara við gott tækifæri. Ég kom svo heim og vann einn dag og fór svo í 6 daga vaktafrí. Í dag nýtti ég daginn. Ég svaf reyndar frekar lengi en fór í sund og synti heila 1500 metra. Ég hef í fyrsta lagi ekki synt í 100 ár og í öðru lagi ekki synt fyrir 1000 metra í 200 ár. Ég stefni á að fara í sund fyrir vinnu á miðvikudaginn.
Ég er í einhverri blogglægð þessa dagana. Ég er samt klár með nýja sjónvarpsþáttagagnrýni og það fyrir þáttinn Kallarnir á Sirkus. Hún kemur við tækifæri.
Ég bíð líka mjög spennt eftir svarinu frá Ómari.
Ég er farin eitthvert.
<< Home