Draumar
Ég held að lítill svefn og mikið stress að undanförnu skili sér í hinum undarlegustu draumum. Í draumunum er alltaf fólk sem ég þekki vel. Að undanförnu hefur mig dreymt að ég hafi brotist inn til Ara Tómas og soðið pasta. Þegar ég varð vör við mammaferðir læddist ég út og skildi pasað eftir í pottinum. Eva var mjög fyrirferðamikil í einum draumi. Hún var með einhverri undarlegri konu í ofsatrú á einhverju og var að reyna að fá mig til að trúa á eitthvað rugl. Prikið var svo allt fullt af beddum. Mig vantaði gististað og ákvað því að leigja mér bedda. Til að geta leigt bedda þurfti maður að kaupa ís. Í ísbúðinni vann Habbý og lét mig fá bragðaref. Habbý heimtaði að ég fengi jarðaber og súkkulaðisósu í bragðarefinn. Mér finnst ekki gott að hafa jarðaber í bragðaref. En ég þorði ekki annað en að hlýða. Samkvæmt draumum mínum þá er það misskilningur að 11. september 2001 hafi verið ráðist á Bandaríkin. Í rauninni lenti risastór blýsprengjukúla á breiðholtið, nákvæmlega á brekkuna hjá hólunum. Ég var á fullu að bjarga heiminum þennan dag.
<< Home