starfskynning
Þá er fyrsta vikan í vinnunni senn á enda. Skrýtið að vera komin í hinn hluta hússins og þarf að sýna mér hvar hinir ýmsu lyklar og fleira er geymt. Mjög mikið búið að gerast og ég er búin að læra helling. En það sem mér finnst skemmtilegast er að ég get notað fullt af dóti sem ég er búin að læra í skólanum. Suma hluti er ég líka að setja í betra samhengi núna. Annars er það orðið frægt að fyrsti þátturinn sem ég tækniskoðaði fór beint í hausinn á framleiðanda og höfnunarskýrslan með! Geri aðrir betur. Reynar er ég búin að hafna einu öðru prógrammi í þessari viku. Í næstu viku læri ég á klippiforritið AVID. Það verður upphaf dagskrárklipparaferils míns.
Þrátt fyrir að vera ennþá í danska gírnum þá er ég búin að versla allar jólagjafirnar, það tók aðeins tvo daga. Á eftir þegar ég kem heim verður pakkað inn að krafti og þá er Jackie ready til að halda jól. Það verður haldið í hefðirnar í kvöld. Það er saltfiskur í matinn, namminamm, svo verður farið í afmæli til föðursystur minnar og þá hefst jólaátið fyrir alvöru. Afmæli hjá henni er eins og besta fermingarveisla. Ég hlakka líka til þar sem ég hef ekki hitt föðurfjölskylduna mína í 5 mánuði. Eftir að hafa étið yfir mig er stefnan tekin á hin árlega hitting vinnanna á Kaffi Vín.
Ég var að renna yfir myndirnar sem verða sýndar á RUV um jólin. Þetta eru alveg ágætismyndir enda er RUV alveg ágætis sjónvarpsstöð. Tékk it!
GLEÐILEG JÓL!
<< Home